Rúmum þremur áratugum eftir gildistöku samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) er enn deilt um eina af þeim málamiðlunum sem gerðu hann mögulegan. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur höfðað mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við samninginn, en Alþingi hefur í fjórða sinn fengið frumvarp um að verða við kröfum stofnunarinnar.