Fyrirhugaðar breytingar á fjármögnun Ríkisútvarpsins hafa sætt gagnrýni frá Sýn og Viðskiptaráði Íslands. Báðir aðilar telja að auglýsingaþak upp á 2,8 milljarða króna geti skapað hvata til undirboða og aukinnar auglýsingasölu í stað þess að draga úr umsvifum RÚV á markaðnum.