Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), segir að ekki verði aftur samið um hóflegar launahækkanir til lengri tíma án skýrra trygginga fyrir því að stjórnvöld, sveitarfélög og fyrirtæki standi við gefin loforð. Traust milli aðila vinnumarkaðarins muni ráða miklu um framgang næstu kjarasamninga.