Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, ræddi áhrif gervigreindar á vinnustaði og hvernig best væri að búa í haginn fyrir stækkandi hlut hennar í atvinnulífinu. Hann sagði að ræða þyrfti hvernig gervigreind yrði innleidd og hvaða áhrif hún hefði á kaup og kjör launafólks. STÖÐVA GERVIGREINDINA EKKI „Við höfum áður séð vélar taka störf af fólki,“ sagði Finnbjörn í þingsetningarræðu sinni á þingi ASÍ. Hann sagði að tölvutækni hefði haft margvísleg áhrif á vinnumhverfið og störf fólks. Hann sagði að gervigreindin væri augljósasta breytingin sem hefði áhrif á atvinnulíf á næstunni en ekki sú eina.„Þessi þróun, við stöðvum hana ekki. Það er heldur engin ástæða til þess.“Finnbjörn sagði tækniframfarir geta létt fólki störfin og gert vinnuna betri. Hann sagði að vinnandi fólk