Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, er ekki hlynnt því að atvinnumannahnefaleikar verði heimilaðir á Íslandi og hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum sem heimila iðkun þeirra eða keppni. Hún vísar einkum til hættu á bráðum og langvinnum höfuð- og heilaskaða vegna endurtekinna högga á höfuð.