Biður um Red Bull, færð Eilífa orku

„Vodka Red Bull, takk,“ segir fréttamaður Kveiks við barþjón á bar í miðbæ Reykjavíkur og greiðir fyrir drykkinn.Barþjónninn nær í glas, vodka og Eilífa orku. Hellir í glas með klökum.„Er þetta Red Bull?“ spyr fréttamaðurinn.„Orka heitir hann, mjög svipaður. Orkudrykkur,“ svarar barþjónninn.Hann hefur rétt fyrir sér. Bragðið er mjög svipað. Ölgerðin framleiðir drykkinn en fyrirtækið var áður með umboðið fyrir Red Bull.Umboðsaðili Red Bull hér á landi segir Ölgerðina hafa stundað „vægt einelti“ síðan fyrirtækið missti umboðið fyrir þennan mest selda orkudrykk í heimi. Ölgerðin hafi útilokað drykkinn víða og sett á markað drykk með svipuðu bragði.Árið 2024 sleit austurríski orkudrykkjarisinn Red Bull samstarfi við Ölgerðina. Rúmu ári síðar var Ölgerðin komin með sinn eigin drykk, Eilífa orku
Biður um Red Bull, færð Eilífa orku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd