Bora holu til að sporna við hlýnun jarðar

Það var nóg um að vera þegar við kíktum í heimsókn á Grundartanga. Forvitnir starfsmenn með bros á vör tóku á móti okkur ásamt hljóðinu úr bornum sem var kominn 800 metra niður í jörðina, rétt rúmlega hálfnaður.Hvað verður um koltvísýringinn? „Við blöndum honum saman við vatn og búum til kolsýrt vatn,“ segir Salka Kolbeinsdóttir jarðfræðingur Carbfix. „Síðan er þessu dælt neðanjarðar og innan tveggja ára breytist það svo í kalsítsteindir.“Ólafur Elínarsson samskiptastjóri Carbfix segir að fyrirtækin á Grundartanga séu jákvæð fyrir þessum rannsóknum. Hann reiknar með því að vera kominn með nokkuð góða mynd af því um áramótin hvort hægt sé að færa verkefnið af rannsóknarstigi yfir í að byrja að fanga og binda koltvíoxíð.
Bora holu til að sporna við hlýnun jarðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd