Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir raunverulegan möguleika á því að félagið yfirgefi Alþýðusamband Íslands (ASÍ). Hún segir að Efling þurfi að íhuga framtíð sína innan sambandsins af fullri alvöru, óháð því hvernig mál þróast á þingi ASÍ sem nú stendur yfir.