Katie Zacharia, nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, átti ekki draumabyrjun í starfi þegar hún hélt sinn fyrsta blaðamannafund í gær.Zacharia, sem tekur við af Karoline Leavitt, svaraði aðeins þremur blaðamönnum á fundinum í gær og lauk honum töluvert fyrr en venjan er eða eftir aðeins um stundarfjórðung.Þá þóttu upphafsorð hennar heldur ósannfærandi, svo vægt sé til orða tekið. Hún tafsaði og leit vart upp af blaði þegar hún ræddi yfirstandandi kosningafundaröð Trumps forseta og kynnti næstu áfangastaði.Þegar hún svo ruglaðist á Donald Trump og eiginmanni sínum uppskar hún kurteislegan hlátur frá þeim skara fréttamanna sem saman var kominn í Hvíta húsinu. Einhverjir hafa væntanlega fengið örlítinn kjánahroll yfir þessari fyrstu atrennu Zacharia í nýju starfi.The Guardian tók saman vandræð