Réttindi launafólks snúast um mun meira en launaseðla og fjárhæðir. Þau eru einnig mikilvægur þáttur í því að skapa heilbrigt starfsumhverfi, setja mörk í samskiptum atvinnurekenda og starfsfólks og koma í veg fyrir að óheilbrigð hegðun fái að viðgangast. Þetta er meðal þess sem Sunna Arnardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, fjallar um í nýrri rafbók sinni, Know Your Rights, sem hún hefur ákveðið að gera öllum aðgengilega án endurgjalds.