Doppumeistari Íslands hannaði jólarjúpuna í ár

Listasmiðja Sólheima í Grímsnesi hefur sett af stað nýja hefð: Jólarjúpu ársins. Hönnuður jólarjúpunnar í ár er doppumeistarinn á Sólheimum, sem hefur að eigin sögn málað þrisvar sinnum fleiri doppur um ævina en íbúar á Íslandi eru margir.Leirlistamaðurinn Kristján Atli Sævarsson á heiðurinn af hinum þekktu Doppu-rjúpum sem hafa notið mikilla vinsælda í verslun Sólheima. Doppurnar eru hans aðalsmerki. Það kemur því ekki á óvart að jólarjúpa Sólheima sé alsett doppum. Tvö hundruð eintök voru gerð en þau eru öll seld. „Hún seldist upp bara á þremur tímum,“ segir Kristján.En hversu margar rjúpur skyldi Kristján hafa málað? „Árans, ég bara veit það ekki, er búinn að missa töluna fyrir mörgum árum. Ég held að allar doppurnar sem ég hef gert séu meira en þrefalt á við íbúafjölda Íslands.“
Doppumeistari Íslands hannaði jólarjúpuna í ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd