Formaður Neytendasamtakanna fagnar því að Samkeppniseftirlitið bregðist við ábendingum um möguleg samkeppnislagabrot Ölgerðarinnar.Hann segir Neytendasamtökin hafa heyrt af viðskiptaháttum Ölgerðarinnar sem fjallað var um í Kveik í gær og tilkynnt til Samkeppniseftirlitsins. Í þætti Kveiks í gær kom fram að keppinautar Ölgerðarinnar telja fyrirtækið útiloka samkeppnisaðila með samningum sem hún gerir við viðskiptavini. Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á föstudag.„Þessi dæmi sem sjást þarna í Kveiksþættinum eru mjög alvarleg og hugsanlega brot á 11. grein samkeppnislaga. Öll aðför að samkeppni er aðför að neytendum því neytendur borga brúsann á endanum með einum eða öðrum hætti,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.Meðal þess sem kom fr