Fjórir voru drepnir í loftárásum Rússa á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt. Eldflaugum og drónum var beint að orkufyrirtækjum og innviðum. Að sögn yfirvalda í Úkraínu fór rafmagn af hjá minnst 600 þúsund manns vegna árása Rússa í nótt.Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði að Rússar hefðu vísvitandi virt að vettugi það vopnahlé sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði lýst yfir vegna árása á orkuinnviði.„Rússland hefur aldrei fyrr sýnt Bandaríkjunum jafn áberandi óvirðingu.“Sergiy Beskrestnov, aðstoðarmaður Zelenskys, sagði í viðtali við AFP að Starlink-gervihnattakerfið sem Úkraínumenn hafa notað til að stýra loftvörnum hefði ekki virkað sem skyldi í nótt. Svo virtist sem virkni þess hefði verið takmörkuð. Hann sagði að þetta væri ekki tilviljun og tengdist því sem væri að gerast