Notkun gervigreindar í skáldskaparskrifum fer sívaxandi og að undanförnu hafa víða um heim komið upp mál þar sem verðlaunasaga í handritakeppni reynist skrifuð af gervigreind. Á síðum bandaríska tímaritsins Atlantic var um helgina fjallað um Simbarashe Steyn Kundizeza, höfund sem er grunaður um að hafa notast við gervigreind við skrif smásögu sem hlaut Caine-verðlaunin, virt afrísk verðlaun.Handritasamkeppnin er ein af mörgum sem hafa ratað í heimspressuna á síðustu misserum fyrir akkúrat þetta, að verðlauna sögu sem er talin skrifuð af gervigreind. Fríða Þorkelsdóttir fjallaði um málið í Lestinni í vikunni.Það gerist æ oftar að höfundar sem hljóta verðlaun í handritasamkeppnum víða um heim séu grunaðir um að hafa látið gervigreind skrifa fyrir sig. Forlagið gefur ekki út bækur sem eru skr