Stjórnvöld í Perú hyggjast banna stúlkum að ganga í stuttum pilsum og að bera naglalakk í skólum. Þá vilja þau jafnframt banna drengjum að vera með langt hár.Keiko Fujimori, sem kjörin var forseti landsins í júlí, sagði í nýlegri heimsókn í skóla í útjaðri höfuðborgarinnar Lima að regla verði að ríkja í skólum landsins jafnt sem á götum þess.Naglalakk og langir lokkar eru aðeins hluti þeirra aðgerða sem Fujimori stefnir að, en að hennar sögn eru þær liður í því að sporna gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi í skólum landsins. ÓSENNILEGT AÐ AÐGERÐIRNAR DRAGI ÚR OFBELDI Hún vill einnig banna andlitsfarða, litað hár og þá segir hún að róstusömustu nemendurnir ættu að vera reknir úr skólakerfinu. Jafnframt verða símar bannaðir í skólum nema með leyfi kennara.Kvenréttindasamtök í