Ölgerðin hyggst taka styrktarsamninga við nemendafélög í háskólum sérstaklega til skoðunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu í kjölfar umfjöllunar Kveiks í kvöld. Undir tilkynninguna skrifar Jón Þorsteinn Oddleifsson forstjóri Ölgerðarinnar.Í Kveik var fjallað um markvissa útilokun Ölgerðarinnar á vörum samkeppnisaðila sinna á börum, veitingahúsum, útihátíðum og hjá nemendafélögum.Í samningi sem Ölgerðin gerði við nemendafélag í Háskóla Íslands segir að nemendafélagið skuldbindi sig til þess að „einungis bjóða upp á bjór og aðrar vörur frá ÖES [Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni] á bjórkvöldum og öðrum uppákomum félagsins“. Þá skuldbindi félagið sig til að „semja við bari og veitingahús sem eru í viðskiptum við Ölgerðina“.Sérstaklega er tekið fram að samningurinn sé trúnaðarmál.