Myndskeið: Dróninn afhjúpaði tvær óþekktar réttir

Þegar Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari sendi drónann á loft til að mynda rétt í Landeyjum komu þrjár réttir í ljós á sama hólnum. Bóndinn á staðnum hafði þó einungis vitneskju um eina þeirra. Frá þessu segir Anna Fjóla í Dagmálum í samtali við Óskar Bergsson þar sem hún ræðir bók sína, Réttir á Íslandi. Í henni eru ljósmyndir af um 700 réttum víðs vegar um landið.
Myndskeið: Dróninn afhjúpaði tvær óþekktar réttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd