Hringveginum verður lokað að hluta milli klukkan 5:00 og 9:00 í fyrramálið á Suður- og Suðausturlandi vegna óveðurs.Á vef Vegagerðarinnar segir að annars vegar verði mjúk lokun á Hringvegi frá Fagurhólsmýri að Freysnesi og hins vegar frá Heimalandi við Markarfljót að Fagurhólsmýri. Mannaðir lokunarpóstar verða á svæðinu.Þá segir í færslu á vef Vegagerðarinnar að þar sem vindur blæs af hafi megi gera ráð fyrir að það geti gefið yfir sjóvarnir og hafnargarða. Einnig gæti sjór gengið á land á strandsvæðum.Wikipedia / Bering Land Bridge Nat. Pres.