Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur

Duane „Keffe D“ Davis hefur hlotið að minnsta kosti 40 ára fangelsisdóm fyrir að hafa fyrirskipað morðið á rapparanum Tupac Shakur. Davis, sem er 63 ára, er fyrrum leiðtogi glæpagengis í Kaliforníu. Hann var fundinn sekur í síðasta mánuði.Carli Kierny, dómari í málinu, sendi Davis skýr skilaboð við dómsuppkvaðninguna.„Í þrjú ár hef ég hlustað á þig segja einhverja útgáfu af sama hlutnum... „Já, ég tók þátt í þessu. En ég er breyttur. Ég flutti úr Compton. Ég er afi núna,““ sagði Kierny og hélt áfram.„Þú færð ekki að hrifsa mann frá fjölskyldu hans. Þú færð ekki að hrifsa líf hans og framtíð hans frá honum og ganga svo burt.“Davis hefur sagst ætla að áfrýja dómnum.Tupac Shakur, þekktur undir listamannanafni sínu 2Pac, var skotinn til bana í Las Vegas 7. september 1996. Hann var á leið í sam
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd