Um 4% dauðsfalla í Belgíu í fyrra voru með dánaraðstoð. Hlutfallið hefur tvöfaldast frá árinu 2020, að því er fram kemur í skýrslu stofnunar um mat og stjórnun dánaraðstoðar, sem kom út fyrr í þessum mánuði.Í skýrslunni kemur fram að árið 2020 hafi 2.445 dauðsföll verið vegna dánaraðstoðar, tæp 2% af dauðsföllum í landinu. Árið 2025 voru þessi dauðsföll orðin 4.487, eða 4% af öllum dauðsföllum. Hlutfallið tvöfaldaðist því á þessum fimm árum. Þá kemur einnig fram að þessum dauðsföllum fjölgaði um 12,4% milli ára.Flestar beiðnir um dánaraðstoð eru vegna krabbameins, 51,8% þeirra. Þetta hlutfall fer þó lækkandi á kostnað langvinnra sjúkdóma, eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og lungnateppu.Þá kemur fram að í 24,2% dauðsfalla voru viðkomandi ekki dauðvona. Þetta hlutfall fer hækkandi.