Um 200 þúsund manns tóku þátt í mótmælum til stuðnings bættum kjörum framhaldsskólanema í Frakklandi í dag. Harka tók að færast í leikinn síðdegis og búist er við óeirðum í kvöld.Nemendur kvarta undan fjársvelti í skólum, úr sér gengnum húsakosti og skorti á kennurum. Þeim hefur fækkað síðustu ár þrátt fyrir að nemendum hafi fjölgað um hundruð þúsunda.Framan af í dag voru mótmælin nokkuð friðsöm. Harka færðist þó í leikinn seinnipartinn og í kvöld má gera ráð fyrir að þau nái hámarki.Sænski aðgerðasinninn Greta Thunberg kom til Parísar til að sýna mótmælendum stuðning. Hún gagnrýnir lögreglu fyrir tuddaskap.