Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu glerþökum landsins. Héðinshurðir, ásamt samstarfsaðilum, vinna verkið eftir útboð.„Verkefnið verður í tveimur hlutum. Við erum búnir að vera núna í innivinnu þar sem við höfum verið að pússa og mála límstrésbita og í raun og veru hlerana líka, sem eru fyrir glerinu,“ segir Gísli Kristjánsson, framkvæmdastjóri Héðinshurða.Gísli segir að aðalverkið verði eftir áramót, en hvað gerist þá?„Þá munum við í raun og veru byggja yfir glerþakið og tökum í raun og veru þrjár einingar ef maður getur sagt það þannig. Þetta eru í heildina um 300 gluggaeiningar, 298 ef ég man rétt. Þannig að við munum taka þrjár einingar í einu og byggja yfir það stillans,