Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgunblaðsins. Þar sagði hann að þegar bankanum þótti ólíklegt að geta ekki lækkað verðbólgu undir markmið kjarasamninga gæti bankinn búið til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp samningum.„Mér finnst þetta sérstök nálgun, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Hanna Katrín í Kastljósi í kvöld.Hún segist ekki hafa orðið vör við þessa hugsun í samtölum í aðdraganda þess að samningar voru tryggðir áfram. Hún vildi þó tjá sig um það hvort að með þessu væri Seðlabankinn kominn út fyrir verksvið sitt.Horfa má á þáttinn í spilaranum hér að neðan en Hanna Katrín ræddi einnig lax