Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa

Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta kemur fram í umfjöllun sem The Guardian birti í dag.Umfjöllun The Guardian byggir á óbirtri skýrslu brasilískra yfirvalda þar sem fram kemur að glæpasamtökin PCC, eða Primeiro Comando da Capital, hafi haslað sér völl í sextán löndum Evrópu, þar á meðal hér á Íslandi.Í gögnum lögreglu, leyniþjónustu og dómstóla víða um Evrópu kemur fram að umsvif suðuramerískra glæpasamtaka hafi aukist verulega á síðustu árum samhliða mun meira kókaínsmygli til álfunnar.Suðuramerísk glæpasamtök hafa aukið umsvif sín víða um Evrópu og starfa nú einnig á Íslandi. Smygl á kókaíni hefur margfaldast. Ráðherra segir lögregluna styrkjast með s
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd