Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar skemmtiferðaskip var í höfn, samanborið við 63 á dögum án skipa. Það er mismunur upp á 421%.Meðalgreiðslan var hins vegar sú sama, um 4.900 krónur. Skipafarþegarnir eyða því ekki meira í hvert skipti, heldur fjölgar færslunum fimmfalt.Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir komu skipa skipta sköpum fyrir atvinnulíf bæjarins.„Þær skipta bara mjög miklu máli fyrir okkur og eru kærkomin viðbót, ekki bara fyrir ferðaþjónustuna heldur atvinnulífið í heild sinni. Við erum svona stórveldi í skemmtiskipamóttökunni þó að við séum lítil í ferðaþjónustunni heilt yfir.“ FARÞEGAR MINNI SKEMMTIFERÐASKIPA EYÐA NÆR ÞREFALT MEIRA Í LANDI Eins og fram h