Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar:Árið 2005, eða um það leyti, var mér veitt kynfræðsla í grunnskóla. Það eftirminnilegasta úr henni var dönsk teiknimynd sem mig minnir að hafi fjallað um konu og mann að stunda kynlíf, vídeó af einhverjum að fæða barn og umræðu um klamýdíu og smokka. Allt var þetta gott og blessað fyrir utan það að snúast eingöngu um gagnkynhneigt kynlíf sískynja fólks, sem hefur þann galla að stóran samfélagshóp skortir fræðslu um öruggt kynlíf og svo geta fordómar grasserað þar sem þekking er lítil.En engar áhyggjur, ef þið lærðuð þetta ekki í grunnskóla fyrir tuttugu árum getiði skellt ykkur á Sex Ed í Borgarleikhúsinu og lært aðeins meira. Sex Ed er um tveggja tíma kabarett-grín-sirkus-sketcha-sýning, sem upprunalega var sett upp af bandaríska sviðslistahópnum Visceral A