Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suðurlandi.Hún tekur gildi strax í fyrramálið klukkan 05:00 og gildir til klukkan 10:00. Búist er við austan og norðaustan átt, 18 til 28 metrum á sekúndu og staðbundnum vindhviðum sem fara yfir 40 metra á sekúndu. Talsverð rigning verður á láglendi og geta lausamunir fokið.Veðurviðvaranir víða annars staðar á landinu taka svo gildi ein af öðrum og er enginn landshluti undanskilinn. Næsta appelsínugula viðvörun tekur gildi klukkan 11:00 á Breiðafirði þar sem verður norðaustan- og síðar norðanvindur, 20 til 28 metrar á sekúndu, með mjög snörpum vindhviðum.Appelsínugul viðvörun tekur svo gildi á Vestfjörðum klukkan 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi