Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgunarskipa og var fyrsta skipið afhent haustið 2022. Heildarkostnaður við hvert skip er um 340 milljónir króna, ríkið greiðir helming eins og fyrr segir, Landsbjörg 25 prósent og 25 prósent eru fjármögnuð af þeirri björgunarsveit sem fær skipið í hendur. FJÁRMÖGNUN FJÖGURRA SÍÐUSTU SKIPANNA ÓLOKIÐ Kolbeinn Óttarsson Proppé situr í stjórn Landsbjargar og er fulltrúi í framkvæmdastjórn björgunarbátasjóða.„Niðurstaðan er sú að það þurfi 13 ný björgunarskip hringinn í kringum landið og það er engin tilviljun hvar þau eru sett niður og heldur ekki í raun og veru í hvaða röð. Það er metin þörfin fyrir þessar bjargir á hverju svæði. En það var sami