Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor. Þetta segir Michael Kotlikoff formaður háskólaráðsins í yfirlýsingu.Þessi tími verði notaður til að fara ofan í saumana á bræðralagssamfélaginu til að ákveða hvort og þá hvernig það geti haldið áfram í skólanum á öruggan hátt.Málið snýst um hópnauðgun sem var kærð í síðasta mánuði en kærandinn segir að hafi átt sér stað árið 2024. Hún hafi verið þvinguð til að taka ketamín og eftir það hafi sjö úr einu bræðralaginu ráðist á sig og nauðgað sér.Þegar hún lét vita af nauðguninni á sínum tíma var bræðralagið lagt niður og nemendurnir reknir tímabundið. Brottreksturinn varð síðar varanlegur hjá tveimur þeirra.Skólayfirvöld eru gagnrýnd fyrir að