Sigrún Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia, segir að flugbrautin á Djúpavogi sé nothæf. Í liðinni viku fjallaði Morgunblaðið hins vegar um að heimastjórn Djúpavogs hefði lagt til að flugbrautinni yrði breytt í vegslóða þar sem hún hefði verið ónothæf um árabil.