Andri Már Mortensen Birgisson, sem dæmdur var í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykholtsmálinu, var höfuðpaur og aðalskipuleggjandi þess. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Suðurlands sem birtur var í dag.Alls voru sex ákærð í málinu fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán.Brotaþoli, sem er 61 árs gamall palestínskur maður með maltneskt ríkisfang, var sviptur frelsi sínu frá föstudeginum 19. apríl til mánudagsins 22. apríl 2024 á heimili sínu í Reykholti. Þar beittu sexmenningarnir hann ítrekuðu og margþættu ofbeldi og hótunum með það í skyni að neyða út úr honum fjármuni.Í framhaldi af því var hann farðaður og áverkar hans huldir og farið með hann í verslun Símans þar sem ákærðu fengu útgefin fyrir hann rafræn skilríki. Eftir þa