Hámarkstími nýrra verðtryggðra fasteignalána styttist úr 40 árum í 25 samkvæmt áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í Samráðsgátt stjórnvalda. Það er í samræmi við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalán og eldri frumvörp.Styttur lánstíminn á að tryggja að höfuðstóll hækki ekki á neinu tólf mánaða tímabili lánstímans miðað við meðalvexti nýrra verðtryggðra lána hjá lánastofnunum undanfarinn áratug miðað við að verðbólga sé við 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans.Fjármálaráðuneytið hefur í bígerð að leggja fram frumvarp þessa efnis þar sem jafnframt verði veiting lána með sambærilega eiginleika og verðtryggð lán takmörkuð.Í frumvarpinu verði mælt fyrir um hámark þess hversu mikill annar kostnaður en verðbætur megi reglulega leggjast á