Öll stærstu bandarísku tæknifyrirtækin hafa kannað möguleika á uppbyggingu gagnavera á Íslandi en umfang þeirra verkefna sem þau horfa til er langt umfram það sem raforkukerfið ræður við. Ekki er talið raunhæft að ráðast í mjög stór gagnaversverkefni hér á landi á næstu fimm til sjö árum miðað við fyrirliggjandi áætlanir um aukna orkuframleiðslu.