Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen

Sádi-Arabar gerðu í dag árás á olíubirgðastöð Yemen Petroleum Company í borginni Sanaa í vesturhluta Jemen. Þetta segja talsmenn Húta í Jemen, en talsmaður stjórnvalda í Sádi-Arabíu hafði fyrr í dag sagt að fólk ætti að halda sig frá stöðinni.Árásin er svar við árásum Húta á tvo flugvelli í Sádi-Arabíu undanfarna daga. Þegar stjórnvöld þar gáfu út viðvörun sína sögðu Hútar strax að ef olíubirgðastöðin yrði sprengd myndu þeir í staðinn ráðast á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh – sem þeir hafa gert áður síðustu daga – olíuhreinsistöð og bækistöðvar olíufyrirtækisins Aramco.Átökin milli Sádi-Araba og Húta hafa stigmagnast undanfarnar vikur. 13 voru drepnir í árás Húta á flugvöllinn í Riyadh um helgina. Sádi-Arabar segjast hafa skotið niður nokkra dróna í dag. Það er því ekki að sjá að þessum átöku
Sádi-Arabar ráðast á olíubirgðarstöð í Jemen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd