Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi

Vegagerðin varar vegfarendur við mjög hvössum vindi undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum frá því snemma í fyrramálið og til um kl. 9:00 á morgun. Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn og búist er við að veðrið verði hvað verst á norðvestanverðu landinu.Í tilkynningu Vegagerðarinnar er varað við ofsaveðri á Vestfjarðakjálkanum og utantil á Snæfellsnesi yfir daginn og fram á kvöld.„Mikil snjókoma og hríðarveður verða á fjallvegum. Jaðar óveðursins verður þá um Dali og utanverðan Skagafjörð og hann mjög skarpur. Mun skaplegra veður verður sunnan hans.“RÚV
Vara við hvassviðri syðst og ofsaveðri á Norðvesturlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd