Skólastjóri Ölduselsskóla ánægð með að aðgerðum gegn myglu verði fram haldið

Erla Erlendsdóttir, skólastjóri Ölduselsskóla í Breiðholti, kveðst bjartsýn á að mótvægisaðgerðum vegna myglu sem áður hafði greinst í skólabyggingunni ljúki fyrir áramót.Brýnast sé að koma í veg fyrir þakleka. Í seinustu viku kom fram tillaga af hálfu Reykjavíkurborgar um að fresta framkvæmdum fram á næsta fjárhagsár. Horfið hefur verið frá þeirri hugmynd eftir samtal við skólastjórnendur sem gátu undirstrikað mikilvægi þess að ekki yrði gert hlé á framkvæmdum.Erla segir umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í skólanum í eitt og hálft ár og hluti húsnæðis skólans sé enn lokaður. Til að mæta því hefur borgin útvegað þrettán færanlegar kennslustofur þar sem kennsla 1. til 4. bekkjar fer fram.
Skólastjóri Ölduselsskóla ánægð með að aðgerðum gegn myglu verði fram haldið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd