Sprengdu 1.300 metra langa brú vegna endurbóta

Ítalskir verkfræðingar sprengdu um helgina 13 höft í brúnni Viadotto Tevere, sem liggur yfir ána Tíber. Hún er hluti af þjóðvegi sem tengir saman héruðin Lazio og Umbria. Sprengjurnar voru settar í sérstök göt í bitum gamla brúargólfsins og sprengingunum stýrt þannig að afmarkaðir hlutar brúargólfsins féllu lóðrétt niður. Aðgerðin gekk að óskum.Ráðast á í umfangsmiklar endurbætur á burðarvirki brúarinnar. Þá verður nýja brúargólfið bæði úr stáli og steypu. Gömlu stoðir brúarinnar verða notaðar áfram. Framkvæmdin kostar rúmlega 40 milljónir evra, jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna.
Sprengdu 1.300 metra langa brú vegna endurbóta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd