Rannsókn lögreglunnar á Vesturlandi á háspennuslysi í tengivirki Landsnets í Borgarfirði stendur enn yfir. Yfirlögregluþjónn segir að lögregla sé enn að safna gögnum og greina aðstæður til að komast að því hvað olli slysinu. Málið sé ekki komið á þann stað að einhver hafi stöðu grunaðs.Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að rannsóknin eigi að leiða í ljós hvort mistök hafi átt sér stað og þá hvers eðlis þau voru. Það sé hlutverk lögreglu að meta hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.Vinnueftirlitið hefur atvikið einnig til rannsóknar. Þá segir Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, að fyrirtækið hafi fengið sjálfstæðan aðila til að gera úttekt vegna slyssins.Hvorki Landsnet né lögregla gátu veitt upplýsingar um starfs