Ökumaður sem ók á átta ára dreng í Mosfellsbæ um kvöldmatarleytið í gær hefur gefið sig fram við lögreglu. Drengurinn var á ferð á reiðhjóli við Vefarastræti 11 þegar ekið var á hann. Drengurinn féll af hjólinu og slasaðist auk þess sem hjólið skemmdist. Ökumaður bílsins ók rakleitt af vettvangi án þess að skeyta um drenginn og líðan hans, samkvæmt tilkynningu lögreglu.Faðir drengsins sagði son sinn hafa lýst ökumanninum sem ungri stúlku sem hefði verið í símanum. Hún hefði opnað gluggann og sagt eitthvað við drenginn og síðan ekið áfram. Eftir hefði drengurinn setið hágrátandi með blóðnasir og skemmt hjól.Lögregla sagði mikilvægt að ökumenn gengju úr skugga um að engin meiðsl eða skemmdir hefðu hlotist af við slíkar aðstæður og auglýsti eftir því að ökumaðurinn gæfi sig fram, sem hann/hún