Upptökur af símtölum við bandarísku neyðarlínuna eftir að aftaka Christu Pike 30. september mistókst gefa til kynna að misskilningur hafi orðið milli starfsmanna fangelsins og neyðarlínunnar. Það gæti hafa orðið til þess að Pike fékk læknisaðstoð seinna en annars hefði orðið. Neyðarlínan velti því meðal annars fyrir sér hvort símtalið væri gabb.Upptökurnar voru birtar í gærkvöldi. Þar heyrist maður sem var staddur í Riberbend öryggisfangelsinu í Nashville, þar sem tilraunin til aftökunnar fór fram, útskýra þessa tilraun.„Við höfum gefið henni 10 grömm af pentobarbital. Manneskjan er ekki látinn enn. Við byrjuðum fyrir um það bil klukkustund síðan. Og við þurfum sjúkrabíl.“ Þá kom fram að Pike ætti erfitt með andardrátt og væri meðvitundarlaus.Starfsmaðurinn sem tók við símtalinu bað viðkom