„Þegar saman fara stormur og snjókoma getum við kallað það stórhríð“

Vonskuveður er í kortunum á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir landið með hvassviðri og úrkomu. Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi á morgun, þær fyrstu strax í fyrramálið.„Það er mjög djúp og kröpp óveðurslægð sem nálgast okkur úr suðri í nótt og í fyrramálið ganga skil frá henni inn á land með austan stormi og mikilli úrkomu – víðast hvar rigning á láglendi en á heiðum norðan- og vestanlands getur orðið hríð fyrripartinn á morgun,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.Síðdegis sé gert ráð fyrir því að miðja lægðarinnar gangi inn á land. Þar sé oft lítill vindur sem þýðir að veðrið skánar að öllum líkindum í suður- og austurhluta landsins og úrkoma minnkar. Hins vegar sé von á norðan stormi vestan við lægðarmiðjuna.„Norðanáttin sækir kalt loft norðan
„Þegar saman fara stormur og snjókoma getum við kallað það stórhríð“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd