Þingmenn Viðreisnar hafa kosið Pawel Bartoszek í embætti þingflokksformanns. Hann tekur við embættinu af Sigmari Guðmundssyni. Sigmar hefur verið í veikindaleyfi í upphafi þings. Samkvæmt tilkynningu frá Viðreisn óskaði Sigmar eftir því að taka að sér önnur verkefni á þingi þegar hann snýr aftur til starfa innan skamms.María Rut Kristinsdóttir var kosin varaformaður þingflokksins og Grímur Grímsson ritari.