Myndaði 700 réttir

Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari hefur myndað um 700 réttir víðs vegar um landið og safnað myndunum í bókina Réttir á Íslandi. Umfang verkefnisins óx jafnt og þétt við rannsóknarvinnuna og alls hefur hún aflað upplýsinga um yfir þúsund réttir. Í Dagmálum segir Anna Fjóla frá leitinni sem lá að baki bókinni. Sumar réttirnar voru þekktar og auðfundnar en aðrar komu í ljós eftir símtöl við bændur sem bentu henni á sífellt fleiri staði.
Myndaði 700 réttir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd