Telur enn fulla ástæðu til bjartsýni

Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa minnkað talsvert hve mikið er talið ráðlegt að veiða af loðnu í vetur. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti rúm 358 þúsund tonn en ný ráðgjöf sem birtist í gær gerir ráð fyrir ríflega 105 þúsund tonna veiði.Gunnþóri Ingvarssyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, líst ekki vel á samdrátt í veiðiráðgjöf. Hann segir að mælingin í fyrrahaust hafi verið ein sú besta sem hafi sést. Ekki tókst að ljúka haustleiðangrinum í ár því skipin þurftu frá að hverfa vegna hafíss og veðurs.Gunnþór er ekki reiðubúinn að gefa upp von um góða vertíð. „Ég held að það sé enn þá full ástæða til bjartsýni um að þessi ungloðna skili sér inn í vertíðina í vetur.“Hann er þó öllu viðbúinn.„Þegar loðnan er annars vegar er ekki á neitt að treysta. Þetta er br
Telur enn fulla ástæðu til bjartsýni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd