Starfsemi dag- og göngudeildar geðdeildarinnar við Sjúkrahúsið á Akureyri flyst aftur á lóð sjúkrahússins á næstu dögum og vikum. Vegna myglu í eldra húsnæði hefur starfsemin verið á hrakhólum undanfarna mánuði.RÚV greindi frá því í vor að starfsemi deildarinnar hefði verið flutt í miðbæinn sökum myglu- og rakaskemmda í húsnæði á lóð sjúkrahússins. Það hús er enn lokað en starfsmenn SAk hafa innréttað og endurbætt annað húsnæði yst á lóðinni sem á að hýsa starfsemina, en það var áður þvottahús spítalans.„Húsumsjón, eða starfsmenn húsumsjónar hafa lyft grettistaki að mínu mati að koma þeirri starfsemi inn í húsrými hér á lóð SAk,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk. ÞVOTTAHÚSIÐ INNRÉTTAÐ Nú er búið að innrétta gamla þvottahúsið með starfsemi geðdeildarinnar að leiðarljósi. Búið er að t