Werner Ívan Rasmusson er látinn 95 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá. Werner var umsvifamikill í viðskiptum og auðgaðist verulega enda sinnti hann rekstri fjölda fyrirtækja á starfsævinni.Eignarhaldsfélagið Ýlir átti 3% hlut í Kringlunni í kringum 1990, Werner rak Ingólfsapótek um árabil og var framkvæmdastjóri og stór hluthafi í lyfjafyrirtækjunum Pharmaco og Kemikalia.Tveir synir Werners og fyrri konu hans, Önnu Kristjönu Karlsdóttur, þeir Karl og Steingrímur, hafa einnig verið áberandi í viðskiptum, voru um tíma meðal auðugustu manna landsins og áttu félagið Milestone sem átti hluti í fjölmörgum fyrirtækjum fyrir efnahagshrunið 2008.Werner fæddist í Reykjavík, eldri sonur hjónanna Ivans Hugo Rasmusson og Ólínu Bjarnadóttur Rasmusson. Hann lauk stúdentsprófi vorið 1950 og hóf þá lyf