Leiðtogar ESB-ríkjanna vilja enn harðari refsiaðgerðir gegn Rússum

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma saman hér í Brussel á fimmtudag og föstudag. Með þeim, að minnsta kosti í fjarsambandi, verður Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og í ljósi þróunar mála síðustu daga er nokkuð víst að málefni Úkraínu verða í forgrunni á þessum fundi.Í drögum að sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoganna, sem lekið hefur verið til fjölmiðla og fréttastofa hefur undir höndum, er ítarlega fjallað um stöðu mála í Úkraínu og hvað þurfi að gera.Leiðtogarnir fagna þeim víðtæku þvingunaraðgerðum sem utanríkisráðherrar ESB ríkjanna afgreiddu í gær, segir í drögunum, og Evrópusambandið er ákveðið í að auka þrýstinginn á Rússland, segir enn fremur; núverandi refsiaðgerðir ættu að komast sem fyrst í gagnið og kallað er eftir frekari aðgerðum gegn Rússum, þar á meðal til að skerða se
Leiðtogar ESB-ríkjanna vilja enn harðari refsiaðgerðir gegn Rússum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd