„Okkur finnst þetta nú bara eðlilegt. Ég skil þau vel að hafa farið í sund því þetta er flottasta sundlaug á Íslandi,“ sagði Thorberg Einarsson sjómaður frá Vopnafirði í Morgunútvarpinu á Rás 2.Sundferð þingmanna Norðausturkjördæmis í kjördæmaviku hefur vakið mikla athygli. Þingmennirnir laumuðust í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku og frömdu húsbrot að mati Ásthildar Lóu Þórisdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknar, segir hins vegar ekkert fréttnæmt við sundferðina.„Ég hefði viljað fara með þeim í sund,“ sagði Thorberg og viðurkenndi að hann dauðöfundaði óþekktan heimamann sem var með í för. „Þið getið rétt ímyndað ykkur, það er verið að skrifa atriði í þorrablótið.“Hlustaðu á spjallið við Thorberg í spilaranum hér fyrir ofan.