11 saknað eftir drónaárás - ESB gagnrýnir hana harðlega

Ellefu sjómanna er saknað eftir drónaárás sem gerð var á tvö skip í Svartahafi undan ströndum Búlgaríu í nótt. Talskona héraðsins Dobrich í norðausturhluta Búlgaríu staðfesti þetta í morgun.Skip í úkraínskri eigu varð fyrst fyrir þremur drónum og skömmu síðar var ráðist á annað skip sem sökk. Öllum 15 úr áhöfn fyrra skipsins var bjargað en sjö þeirra voru frá Úkraínu. Ellefu er saknað úr hinu skipinu en fimm var bjargað. Búlgörsk yfirvöld segja það ekki sannað með óyggjandi hætti hvaðan drónarnir komu en sendiherra Rússlands verði kallaður fyrir.Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, fordæmdi árásirnar og sagði þær aðra birtingarmynd stigmögnunar stríðs Rússa í Úkraínu. Þá sagði Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, að bandalagið myndi aðlaga varnir sínar eftir þö
11 saknað eftir drónaárás - ESB gagnrýnir hana harðlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd