Drangar hefur ráðið nýja framkvæmdastjóra þriggja dótturfélaga, Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Tveir koma frá Nóa Siríus og Bauhaus en sá þriðji er hækkaður í tign. Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga hefur fram að þessu jafnframt stýrt rekstri Samkaupa og Orkunnar. Nú er orðin breyting þar á.